Bloggsvæði Gumma og Jónínu
06.09.2006 16:24:01 / Gummi

Mobile

Nù erum við komin london og bìðum eftir fluginu suðureftir.skruppum ì bæjinn áðan til að èta og hreyfa okkur aðeins fyrir 11 tìma flugjið

» 10 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 18:24:01 / Gummi

Mobile

Mynd003.jpeg

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:14:01 / Gummi

Áfram til:

Þar sem er vesen með síðuna hjá mér verður eitthvað lítið um blogg fyr en síðan kemst í lag.En nú erum við að hefjast handa við að pakka og velja hvað á að taka með

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:32:01 / Gummi

Mobile

Prufa

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 20:18:13 / Gummi

Ég ætti bara alltaf vera 1 í fríi.

Ég er búinn að taka eftir því að þegar ég er 1 í sumafríi þá skín sólin skærast.Nú þegar ég á að vera að gera ýmislegt heimavið þá enda ég útá svölum með Fréttablaðið og kaffi.Þannig að mér verður ekkert að verki fyr en veðrið versnar.

Eins var þetta sumarið "98.Þá var ég að burðast við að innrétta risið og það gekk hægt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 09:32:16 / Gummi

jÓLAGJÖFEN ER KOMYN ÚT

Þið lesendur góðir hafið aldeilis hrunið ofaní lukkudolluna.Í dag var nefnilega að koma út jólagjöfin sem þið getið tekið ykkur saman um að gefa mér.Þetta er stærsta verk sinnar tegundar sem hefur komið út,nefnilega STAFSETNIGARORÐABÓKIN.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 19:01:40 / Gummi

Tolli ekkert í vinnunni.

Nú er ég enn kominn í sumarfrí og er stefnan að fara að klára ýmislegt sem hefur fengið að sitja á hakanum.Verð ég í frí til 20 september, en að öllu óbreyttu komum við frá Afríku aðfaranótt 19 ágúst.

Í gær var haldin mynningarathöfn fyrir þá sem hafa horfið til annara starfa frá Volta.En nýju eigendurnir hafa selt frá verkstæðið og útivinnuna.Það vil nú svo skemmtilega til að þeir fara að vísu ekki langt þar sem Rafvirki ehf.verslaði allann pakkann.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 21:30:13 / Gummi

Þetta er lífið

Ég er farinn að skilja hvað það merkir þegar "aldurinn er farinn að færast yfir mann".Nú er komið að því að Bára er að hefja nám í MH og Kristjana hefur ákveðið að skipta um skóla og fer hún í fyrsta bekk í Hamraskólam eftir fjögra ára nám í Funaborg.Sjöfn heldur sínu striki og fer í níunda bekk nú í haust.En eftir að hún uppgötvaði að hún gæti stundað launaða vinnu,notar hún öll tækifæri og hoppar uppí rútu og skellir sér í sveitina til að vinna.En þess á milli passar hún Kristjönu og fer á æfingar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 22:41:47 / Gummi

Það er ekki sama Jón og séra Sigurður

Ég komst klakklaust frá austfjörðunum og var ekki var við neinar löggur.Ætli þær hafi ekki verið að vakta stíflusvæðið þarna einhverstaðar.Það er nefnilega merkilegt með það að fyrir austan er verið að mótmæla virkjunum og þar er fjölmennt lögreglulið að fylgjast með skítugum,ílla tilhöfðum útlendingum sem láta svelta sig á hálendi Íslands.Það skiftir nefnilega máli hvað verkin eru stór og fyrir hverja þau eru.Ef verkin eru út á landi erum við skattborgarar látnir borga brúsann við gæslu á verkunum,látum semsagt lögregluna um málið.En hér í Reykjavík er lítil framkvæmd,sem er mislægu gatnamótin á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi.Þar aka um misgáfaði flutningabílstjórar og eru oft og iðuleg búnir að keira niður hæðarslár svo að fjöldi pólverja og portúgala eru í bullandi lífshættu við smíðar.Hvað þarf aumingja vertakinn að gera?Ekki fær HANN lögguna til að vakta svæðið.Nei,hann þarf að fá öryggisþjónustu á bullandi gjaldi til að fylgjast með umferðinni og stoppa bíla með háa farma.Það verður gaman að fylgjast með þegar austfirðingar fá mislæg gatnamót.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 23:27:00 / Gummi

Verður svarið rétt?????????

Þar sem ég er að fara austur á Hérað er óvíst hvenær ég kem til byggða.Því frést hefur af því að löggan fyrir austan stoppi fólk og ef það er á móti einhverri stíflu einhverstaðar þarna þá er því fólki stungið í steininn um leið.Ég er nú þannig gerður að ef ég er spurður að einhverju,þá svar ég alltaf vitlaust.Það verður gaman að sjá hvernig þetta endar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 23:57:10 / Gummi

Margt gerist í sveitinni.

Eftir að hafa náð sæmilegri heilsu,en ég ef verið með einhverja skíta pest sl.viku,þá fórum við Kristjana að smíða sólpall undir ruslatunnuna í sveitinn.Á meðan voru stóru stelpurnar þrjár að hjálpa til við að plokka síðustu aurana af þreittum túrhestum.Smíðin komst nú ekki almennilega af stað fyr en formúlan var búinn.En smíðin gekk vel þar til við vorum að taka saman og Kristjan var kominn inn í traktor og ég kom á eftir og ætlaði að loka hurðinn þá voru litlir fingur á milli.Var það til þess að gert var hlé á verkinu og farið að hlúa að þeim stlasað.Voru fingurnir kældir eins lengi og hin stlasaða þoldi við, en besta meðalið var að fá mömmu.Kemur í ljós á næstu dögum hvort aðgerða sé þörf,en eftir samtal við lækninn á Hvammstanga þá taldi hann ekki vera um brot að ræða.

Enn hefur komið í ljós hvað við Jónína erum slæmir foreldrar.Eitt afhvæmi okkar óskaði eftir því að fara til Akureyrar í nótt.Þar sem ekkert okkar afhvæma er orðið sjálfráða fanst okkur þetta frekar spaugileg ósk og var hún sett í nefnd.Nefndin kemur saman þegar henni hentar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 20:34:27 / Gummi

Gott að hvílast í gömlum vagni.

Í gærkvöldi var ég að keyra Landveginn, sem er vegurinn sem liggur upp í Galtarlæk,og var traffíkin alveg endalaus af bílum með felli- eða hjólhýsi.Var fólkið að fara helga sér stæði við rafmagnsinnstungur sem eru á svæðinu.Síðan koma allir á svæðið á morgun og þá er sjálvirka kaffikannan búinn að hella uppá,ísskápurinn fyrir löngu búinn að kæla bjórinn.Æ ég gleimdi því að þetta er bindindismót,þá er gosið orðið kalt.En það findna er að þeir sem eru með afruglaran vita ekki að Stöð 2 og Sýn nást ekki þarna en þá er bara hægt að setja sléttujárnið og hárþurkuna í samband á meðan blástursofninn gerir pizzuna klára.

Ég var hugsa um það á leiðinni frá Blöndósi í dag hvort er meira útilegra að vera með jeppa uppá nokkrar millur og hjólhýsi sem hýsir alla ættina,eða bara á "ódýrum"jeppa með gefins tjaldvagn sem hýsir bara þrjá.Maður sefur örugglega betur í gömlum vagni sem ekki þarf að borga af.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 23:53:39 / Gummi

Er Austur Tímor eftir ?

Við erum hætt að geta haldið börnunum hjá okkur.Jónína og Sjöfn komu í bæjinn í gær og urðum við Kristjana eftir í sveitinni,því aðalfundur Staðarskála var í dag og vildi ég als ekki missa af honum.Kristjana fór svo með rútunni til Akureyrar og ætlaði að kíkja á ættingja og vina.Ekki var hún búinn að nefna það hvað hún ætlaði að vera lengi, en skólinn byrjar 25 ágúst og ekki vil hún missa af fyrsta skóladeginum.

En við fórum í sveitina á sl.fimtudag því Jónína var búinn að lofa einhverjum að leysa af í vinnu því staffið ætlaði á tónleika með Sigur Rós sem haldnir voru í næsta nágrenni.Eða á Djúpuvík, um þriggja tíma akstur aðra leiðina.Svo á föstudaginn lögðum við Kristjana land undir fót og leistum póstmanninn af.Var ekið vítt og breitt.Það sem tekur póstinn venjulega um 3 og 1/2 til 4 tíma, þá vorum við á áttunda tíma.Því það sýndi sig þarna að tíminn er fljótur að líða þegar komið er við í kaffi á bæjum eða stoppar hjá bændum út á vegi.En að lokum fengu allir sinn póst.Svo um kvöldið fórum ég,Kristjana,Sjöfn ofl.á tónleika hjá Röggu Gísla og voru þeir haldnir í Borgarvirki.það var frábær stemming og örgugglega um 1000 mans á svæðinu.Svo á laugardaginn var hátíð á Borðeyri, en einhverja hluta vegna fór hún framhjá okkur en sú hátíð var ekki tileinkuð neinni þjóð,eins og mörg bæjarfélög gera,heldur bara Bæhreppingum.En legg ég til að næst verði Austur Tímorsdagar.Ég held að það sé eina landið sem er eftir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 21:25:33 / Gummi

Hvernig er 2/3 reglan?

Munurinn á ýmsu hér á Íslandi og Danmörku er töluverður í sambandi við ýmislegt.Ég var að leita mér að buxum úti en fann ekki alveg þær réttu og verðið á þeim var um 9000 kr.Svo kom ég heim og fann sambærilegar buxur en þær pössuðu bara og kostuðu bara 6000 kr. Semsagt 2/3 af verðinu úti.Í morgun skruppum við Kristjana uppí Borganes og fengum okkur 2 ísa og 1 kaffi.Í Danmörku hefði þetta kostað 60 kr.danskar en við borguðum 40 kr.danskar (en samt í íslkr.) Semsagt 2/3 af verðinu úti.En svo eftir Borgarnesferðina fórum við niðra strönd (Nauthólsvík) og þá var bara 10 stiga hiti á meðan það er 30 stiga hiti í Danmörku.Hefði ekki átt að verð 20 gráður miðað við 2/3 regluna?

En við Kristjana fórum ekki bara í Borgarnes til að fá okkur ís.Heldur vorum við að fara með rúmföt fyrir hótelið í sveitinni og Kiddi kom á móti okkur


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 23:47:08 / Gummi

Kristjana veiðikló

Ég veit ekki hvaðan Kristjana hefur þann áhuga á að vilja drepa saklausa fiska.Hún nefnir það reglulega að fara að veiða og komum við því í verk í dag.Tækifærið var notað uppá Akranesi þegar við fórum að heimsækja Lilju ömmu.Var farið niðrá bryggju og þar var staðið drykklanga stund og bleitt í veiðafærunum.Að lokum fékk Kristjana einn fisk og var hreikin af.Við vorum hvorki með vikt eða málband til að mæla hann og því síður eitthvað til að setja hann í.En þá datt einhverjum í hug að taka hólkinn úr eldhúsrúllu sem við vorum með og passaði hann vel utan um aflann.Svo var bara brunað í bæinn og fengið sér að éta.En skiftar skoðanir vorum um fisktegundina,annaðhvort ýsa eða ufsi.En þeim ketti sem fær hann í forrétt er trúlega sama.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan